Vélmenni slasaði starfsmann

Tvítugur starfsmaður varð fyrir gripkló vélmennis við færiband.
Tvítugur starfsmaður varð fyrir gripkló vélmennis við færiband. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tvítugur starfsmaður Norðuráls á Grundartanga slasaðist á höfði og andliti er hann varð fyrir gripkló vélmennis við færiband í steypuskála í gærkvöldi. Að sögn lögreglu var maðurinn fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi en var útskrifaður þaðan í morgun.

„Hann slasaðist töluvert og er með skemmdan tanngarð en var ekki í lífshættu," sagði lögreglan í Borgarnesi í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert