Mótorhjólaslys í hringtorgi

Ökumaður mótorhjóls missti stjórn á því í hringtorgi á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ þar sem ekið er upp að Lágafellskirkju. Óhappið varð um klukkan hálf eitt. Vegfarendur gerðu lögreglu viðvart og var ökumaður með meðvitund er sjúkrabíll kom á slysstað. Var hann fluttur á slysadeild.

Ekki er talið að aðrir ökumenn hafi átt þátt í þessu óhappi. Ekki er vitað um líðan ökumannsins að svo stöddu en verið er að hlúa að honum á slysadeild. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert