Rauði krossinn brást við beiðni Neyðarlínunnar klukkan 1:30 í nótt um að aðstoða fjölskyldu á Neshaga eftir að íbúð þeirra skemmdist í bruna. Tveir sjálfboðaliðar úr viðbragðshópi höfuðborgarsvæðis fóru á vettvang.
Fólkinu var komið komið fyrir á hóteli og veittur sálrænn stuðningur. Sjálfboðaliðarnir munu hitta fjölskylduna á morgun og fylgja þeim heim til sín, að því er segir í tilkynningu frá Rauða krossi Íslands.