Tvær bílveltur

Tvær bílveltur urðu á þjóðvegum landsins í dag en blautur snjór og krapi huldi víða vegi og misstu ökumenn í báðum tilvikum stjórn á bifreiðunum og enduðu utan vegar. Annar bíllinn valt eina veltu við Laxá á Ásum klukkan 16.30 og þar slapp ung fjölskylda við meiðsl, hjón með 5 mánaða gamalt barn.

Hinn ökumaðurinn var einn á ferð í Mikladal í grennd við Patreksfjörð á leið til Tálknafjarðar og fór hann eina veltu en engin slys urðu á mönnum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert