Samfylkingin efnir í vikunni til fundaherferðar um landið undir yfirskriftinni: Framtíðin er okkar verkefni. Ráðherrar og þingmenn flokksins verða á faraldsfæti í öllum kjördæmum landsins og ræða þau verkefni sem við blasa í íslenskum stjórnmálum.
Fundaferðinni lýkur með flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á laugardag í Hlégarði í Mosfellsbæ.
Dagskrá fundaherferðarinnar er á heimasíðu Samfylkingarinnar