Brotist inn á tannlæknastofu

Brotist var inn á tannlæknastofu í Breiðholti um kl 4:30 í nótt. Að sögn lögreglu var einn handtekinn í tengslum við málið. Þjófurinn fór inn um glugga og hafði með sér lítilræði af peningum. Engar skemmdir voru unnar á stofunni en einhverju rótað til.

Þjófavarnarkerfi fór í gang og fóru lögreglumenn á vettvang. Þeir lögðu hald á þýfið og handtóku einn mann sem er grunaður um innbrotið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert