Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað fimm manna stjórn Tryggingastofnunar ríkisins, en stofnunin heyrir frá 1. janúar 2008 undir félags- og tryggingamálaráðuneytið.
Hefur Stefán Ólafsson, prófessor, verið skipaður formaður stjórnarinnar.
Stefán kemur nýr inn í stjórnina ásamt Kristni Jónassyni, bæjarstjóra. Aðrir stjórnarmenn eru Margrét S. Einarsdóttir varaformaður, Sigríður Jóhannesdóttir og Sigursteinn Másson.
Varamenn í stjórn Tryggingastofnunar eru Bryndís Friðgeirsdóttir, Svala Árnadóttir, Elsa Ingjaldsdóttir, Signý Jóhannesdóttir og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir.
Hlutverk stjórnarinnar er að hafa eftirlit með starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og gæta þess að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga. Stjórnin staðfestir skipulag stofnunarinnar, starfs- og fjárhagsáætlun hvers árs og markar henni stefnu. Stjórnin tilnefnir jafnframt fulltrúa Tryggingastofnunar í samninganefnd samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu.