Síðdegis var tilkynnt um þjófnað í verslun í miðborginni, og þar kom jafnframt til ryskinga á milli afgreiðslumanns og tæplega fertugrar konu sem er grunuð um þjófnaðinn. Konan var handtekin og færð á lögreglustöð, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Þá greindi lögreglan frá því að þýfi hafi fundist við húsleit í Breiðholti um hádegisbil í gær. Fátt varð um svör þegar húsráðandi var spurður um tilkomu þess. Lögreglan telur sig vita fyrir víst hvaðan hlutunum var stolið og verður þeim komið aftur í réttar hendur.
Í Kópavogi fundust líka munir við húsleit og þar átti húsráðandi í sömu vandræðum með að gera grein fyrir því sem kom í leitirnar, enda leikur grunur á að um þýfi sé að ræða.