Rán framið í verslun í Reykjavík

mbl.is/Júlíus

Rán var framið í verslun 11-11 við Grensásveg í Reykjavík núna laust fyrir klukkan tíu í kvöld, að sögn lögreglunnar, sem hefur þó enn litlar upplýsingar um málið. Ræninginn mun hafa verið vopnaður og farið hlaupandi á brott af vettvangi. Ekki er ljóst hvort hann hafði ránsfeng á brott með sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert