Á almennum félagsfundi Læknafélags Norðvesturlands, sem haldinn var á Sauðárkróki, var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða:
„Læknafélag Norðvesturlands skorar á dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að björgunarþyrla verði staðsett á Akureyri. Þyrla sem staðsett væri á Akureyri gæti þjónað öllu Norðurlandi, Vestfjörðum, Austurlandi og sjófarendum á þessum svæðum. Þessi löngu tímabæra aðgerð stuðlar að minni mönnunarvanda lækna í dreifbýli og eykur öryggi vaxandi fjölda vegfarenda.“