Líkamsárás í Kópavogi

Líkamsárás var framin í Kópavogi um hádegisbil í dag, að sögn lögreglu, og var einn maður fluttur á sjúkrahús með skurð á enni, og annar handtekinn, grunaður um verknaðinn. Málið er í rannsókn.

Lögregla taldi ástæðu til að fara mjög varlega um vettvang árásarinnar þar sem grunur lék á að annar mannanna kynni að vera berklasmitaður.

Leitaði lögreglan því aðstoðar sjúkraflutningamanna sem hafa reynslu og þekkingu til að bregðast við þegar grunur er um smit sem þetta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert