Tveir piltar veittust að lögreglumönnum á Akureyri í nótt við KA-heimilið þar sem fram fór unglingadansleikur. Lögreglumennirnir hugðust flytja á brott félaga piltanna og töldu þeir sig þar með órétti beitta og veittust að lögreglumönnunum. Engan sakaði. Svo fór þó á endanum að piltarnir tveir voru einnig fjarlægðir og færðir á lögreglustöðina. Að sögn lögreglunnar var ennfremur brotin rúða á dansleiknum sem fór að öðru leyti vel fram.