Fimmtán ára piltur brenndist í andliti um helgina þegar hann bar eld að púðri sem hann hafði tekið úr flugeldum. Óhappið varð í Hafnarfirði en pilturinn kom púðrinu fyrir í dós og bar eld að með þeim afleiðingum að eldblossinn náði í andlit hans. Pilturinn hlaut fyrsta og annars stig bruna í andliti og brenndist einnig á hálsi og handleggjum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur foreldra til að fylgjast með því að börn þeirra séu ekki að rífa í sundur flugelda en talsvert sé um að heimatilbúnar sprengjur sé enn sprengdar á höfuðborgarsvæðinu og hafi orðið talsvert eignatjón af þeirra völdum.