Slasaðist í slöngudrætti

Veturinn tók skyndilega öll völd á Suðurnesjum í gær.
Veturinn tók skyndilega öll völd á Suðurnesjum í gær. mbl.is/RAX

Stúlkur gerðu sér það að leik í gærkvöldi að draga uppblásinn hjólbarða aftan í bifreið á hafnarsvæðinu í Sandgerði. Endaði þetta með því að 15 ára stúlka, sem sat á hjólbarðanum, slasaðist á fæti þegar hún lenti á steypustyrktarjárni sem stakkst í vinstra læri hennar.

Þá var ökumaður bíls kærður fyrir að draga félaga sinn í fiskikari á athafnasvæðinu við Helguvík, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert