Smyglari tekinn í Leifsstöð

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. Árvakur

Hollendingur var tekinn í Leifsstöð í gær með kókaín í fórum sínum, um það bil 350 grömm, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Var maðurinn að koma til landsins frá Amsterdam, en tollverðir fundu efnið hjá honum.

Smyglarinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í hálfan mánuð, og lögreglan rannsakar málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert