Þrátt fyrir að færð hafi þyngst verulega á höfuðborgarsvæðinu síðdegis og mikil hálka myndast á götum gekk umferðin stóráfallalaust, að sögn lögreglu. Miklar tafir urðu í síðdegisumferðinni, þegar dimmt él gekk yfir borgina.
Alls var tilkynnt um rúmlega 40 árekstra á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan sjö í morgun til 19 í kvöld, en engin slys urðu.