Bifreið var ekið útaf vegi hjá Kirkjuhólshlíð í Skutulsfirði klukkan hálfníu í gærkvöldi.
Bílinn fór 6-7 metra niður hlíðina og endaði í fjöru en ökumaður komst frá bílnum upp á veginn.
Lögregla og sjúkrabíll komu á staðinn og var ökumaðurinn hrakinn og kaldur.
Farið var með hann á sjúkrahús til athugunar en bíllinn er mikið skemmdur að sögn lögreglunnar á Ísafirði.