Borgarráð samþykkti í dag, að að Sundabraut verði lögð í göngum frá Gufunesi í Laugarnes, með eðlilegum fyrirvara um niðurstöðu umhverfismats. Segir í samþykkt borgarráðs, að þessi afstaða sé í fullu samræmi við fyrri yfirlýsingar og niðurstöðu samráðshóps um Sundabraut frá 8. desember 2006.
Þá samþykkti borgarráð að fela borgarstjóra að efna til samráðs við sveitarfélög og aðra lykilhagsmunaaðila á Vestur og Norðvesturlandi um fundi með þingmönnum viðkomandi kjördæma og aðrar aðgerðir til að vinna að framgangi við lagningu Sundabrautar í göngum.
Samþykkt var tillaga Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra um að skipa fimm fulltrúa í samráðshóp um lagningu Sundabrautar. Áfram verði gert ráð fyrir því að íbúasamtök Grafarvogs og Kjalarness og íbúasamtök Laugardals eigi þar fulltrúa, ásamt Faxaflóahöfnum og Vegagerðinni.