Féll af snjóskafli á garðskála

Þrettán ára drengur skarst á læri þegar hann féll inn í garðskála við íbúðarhús á Selfossi síðastliðinn miðvikudag. Hann hafði verið við leik í snjó ásamt tveimur öðrum strákum í húsgarði.

Drengurinn sat á snjóskafli með bakið að garðskálanum. Skaflinn náði nokkuð hátt upp á garðskálann. Allt í einu gaf glerið sig og drengurinn féll inn í garðskálann með fyrrgreindum afleiðingum. Hann var fluttu með sjúkrabíl á heilsugæsluna á Selfossi þar sem gert var að sárum hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Jakob Falur Kristinsson: Fall
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert