Eldsútkall vegna matseldar

Slökkvilið við fjölbýlishúsið í dag.
Slökkvilið við fjölbýlishúsið í dag. mbl.is/Júlíus

Slökkvilið var kallað nú síðdegis út vegna elds, sem sagður var loga í fjölbýlishúsi við Kaplaskjólsveg í Reykjavík. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn en þegar til kom reyndist íbúi í húsinu hafa verið að elda sér mat og hafði reyk og torkennilega lykt lagt fram á stigagang.

„Við erum ekki með uppskriftina að réttinum," sagði varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert