Ofurölvi í slagsmálum

Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð í gærkvöldi að fjölbýlishúsi í Njarðvík en tveir menn voru í átökum utan við húsið.  Lögreglan stöðvaði átök mannanna, sem voru ofurölvi.   Þeir voru færðir á lögreglustöð þar sem þeir fengu að sofa úr sér vímuna.

Tveir fimmtán ára drengir voru stöðvaðir þar sem þeir óku vélsleðum á opnu svæði innanbæjar í Keflavík í gær en akstur vélsleða innanbæjar er óheimill í Reykjanesbæ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert