Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vekur athygli á stormviðvörun á landinu í nótt og á morgun. Spáð er suðaustan hvassviðri með 20-28 metrum á sekúndu með snörpum vindhviðum. Þá hlýnar snögglega með talsverðri rigningu eða slyddu og gerir því að öllum líkindum asahláku víða um land.
Húseigendur eru hvattir til að hreinsa frá niðurföllum og huga að frárennsli. Sérstök athygli er vakin á hárri sjávarstöðu klukkan 6 í fyrramálið, t.d. í Grindavík 3,75 metrar, á Akranesi 4,29 metrar og í Reykjavík 4,38 metrar.
Ríkislögreglustjóri segir að snjóþekja sé á flestum vegum og hálka víða. Tilmælum er beint til þeirra sem þurfa að vera á ferðinni að fylgjast með veðurspá og færð á vegum áður en lagt er af stað.
Vegna slæms veðurútlits verður Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð virkjuð í nótt og eftir atvikum fram eftir degi á morgun.