Lögreglan á Akranesi segir á vefsíðu sinni í dag frá óvenjulegu verkefni, sem rak á hennar fjörur í síðustu viku. Það hófst með því, að lögreglumenn á eftirlitsferð tóku eftir manni sem sat á ferðatösku, árla morguns, skammt frá Akratorgi.
Lögreglumennirnir gáfu manninum engan sérstakan gaum og héldu áfram ferð sinni en nokkru síðar sáu þeir manninn aftur sitjandi á töskunni á sama stað. Kalt var í veðri og var maðurinn orðinn heldur ræfilslegur að sjá.
Lögreglumennirnir gáfu sig á tal við manninn og reyndist þetta vera útlendingur sem var nýkominn til Íslands til að hitta kærustuna sína og ætlaði að dvelja hjá henni í hálfan mánuð. Hún mun hafa átt að sækja hann á þennan stað en hún er búsett ekki langt frá Akranesi. Eitthvað hafði þó farið úrskeiðis því ekki kom hún á tilsettum tíma og ekki náðist við hana símasamband.
Lögreglan sá aumur á manninum og bauð honum að koma á lögreglustöðina í húsaskjól og heitt kaffi. Dagurinn leið að kvöldi og ekki náðist í kærustuna. Lögreglan aðstoðaði manninn við að finna ódýra gistingu yfir nóttina en hann var auralítill.
Að morgni næsta dags varð lögreglan aftur vör við manninn í reiðileysi með ferðatöskuna. Aftur var honum boðið skjól á lögreglustöðinni og þegar leið á daginn náðist loks í stúlkuna, sem er samlandi mannsins og reyndist ekkert vilja með hann hafa.
„Nú voru góð ráð dýr. Aumingja maðurinn vegalaus á Íslandi, peningalaus, kærustulaus, með farmiða sem gilti heim eftir hálfan mánuð og þekkti engan nema stúlkuna sem hann hélt að væri kærastan hans. Lögreglumenn á vakt tóku til við að leita ráða fyrir manninn og tókst að fá inni fyrir hann á færeyska sjómannaheimilinu í Reykjavík. Lögreglumenn sáu síðast til mannsins þar sem hann fór inn í strætisvagn til Reykjavíkur og greiddi fargjaldið með peningum sem vakthafandi lögreglumenn höfðu gefið honum," segir á fréttavef lögreglunnar.