Alls skrifuðu 5.930 manns undir undirskriftarlista á netinu þar sem Reykvíkingar voru hvattir til þess að mótmæla nýjum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Lísa Kristjánsdóttir, sem stóð að undirskriftarsöfnuninni, ætlaði að afhenda fulltrúum nýs meirihluta listann fyrir borgarstjórnarfundinn sem hefst klukkan 12:15 en enginn var á staðnum til að taka við listanum nú klukkan 11:30.