Vilja Fáfni ekki til Sandgerðis

Sandgerðishöfn.
Sandgerðishöfn. mbl.is/Brynjar Gauti

Bæjarráð Sandgerðis samþykkti í vikunni, að beina þeim tilmælum til þeirra, sem hyggjast leiga eða selja frá sér fasteignir í bæjarfélaginu, að þeir hugleiði varnaðarorð fulltrúa löggæslunnar á Suðurnesjum, sem varað hafi við komu Fáfnismanna til Suðurnesja.

Fram kemur á fréttavef Víkurfrétta, að orðrómur hafi  verið um að mótorhjólaklúbburinn Fáfnir hyggist koma sér fyrir í bæjarfélaginu og hafi bæjaryfirvöld fengið margar fyrirspurnir frá íbúum vegna þessa.  Haft var eftir lögreglustjóra á dögunum að ekkert hefði fengist staðfest um fyrirætlanir klúbbsins en ljóst væri að meðlimir hans væru engir aufúsugestir. Tók hann jafnframt fram að lögregla myndi fylgjast vel með þróun mála.

Bókun bæjarráðs er eftirfarandi:

„Bæjarráð telur eðlilegt að benda bæjarbúum á framkomin varnaðarorð og hvetur íbúa til að gæta vel að sínu nær umhverfi  og samfélagslegri uppbyggingu bæjarfélagsins. Rétt er einnig að minna á ummæli Jóhanns Benediktssonar lögreglustjóra frá því í haust þegar hann varar við ósk mótorhjólaklúbbsins Fáfnis um að tengjast sambærilegum félagsskap erlendis og bjóða þá velkomna til landsins. Sá félagsskapur er að mati lögreglustjóra talin tengjast starfsemi sem er óæskileg hér á landi.
 
Bæjarráð telur rétt og eðlilegt að vara við hverskonar starfsemi sem getur haft neikvæð áhrif á þá byggðaþróun og uppbygginu sem er í samfélaginu en Sandgerðisbær leggur áherslu á góða samfélagslega þjónustu við bæjarbúa  sem og heilbrigt umhverfi fyrir börn og unglinga.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert