Olíufélög hafa lækkað eldsneytisverð um krónu lítrann eftir að hafa hækkað verðið um 2,50 krónur í byrjun vikunnar. Algengt verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu hjá stóru olíufélögunum er 134,90 krónur en dísilolíulítri kostar 137,40 krónur. Verð hjá Orkunni er 133,20 krónur á bensíni og á dísilolíu 135,70 krónur.