Hellisheiði er enn ófær en en opið er í gegnum Þrengslin. Þæfingsfærð er um mestallt Suðurland. Þá er búið að opna Reykjanesbraut og Grindarvíkurveg. Mikill skafrenningur er enn á Suðurnesjum.
Búið er að opna Bröttubrekku og verður reynt að halda henni opinni til klukkan níu í kvöld. Enn er þungfært og stórhríð á Holtavörðuheiði.
Éljagangur er víða á Vestfjörðum og Norðurlandi, og veður fer versnandi á Norðausturlandi.
Á Austurlandi er víðast hált. Öxi er ófær.