Magnús Geir Þórðarsson verður næsti leikhússtjóri Borgarleikhússins. Fram kemur á vef Útvarpsins, að stjórn Leikfélags Reykjavíkur hafi ákveðið þetta á fundi sem stendur nú yfir í Borgarleikhúsinu. Magnús Geir, sem verið hefur leikhússtjóri á Akureyri, tekur við af Guðjóni Pedersen, sem lætur af störfum í vor.