Enn er mjög erfið færð á götum höfuðborgarinnar og samkvæmt upplýsingum lögreglu er viðvörun um að fólk sé ekki á ferli á illa búnum bílum eða að óþörfu enn í gildi. Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar hefur enn ekki undan að ryðja götur og Reykjanesbraut er enn lokuð. Gert er ráð fyrir þéttum éljagangi, þar sem él vara lengur en uppstyttur á Suðvesturhorninu að minnsta kosti til klukkan ellefu.