Bjargar laxastofninum með tækjum kapítalismans

Í nýjasta tölublaði bandaríska fjármálatímaritsins Forbes er fjallað um Orra Vigfússon og haldið til laxveiða með honum í Laxá í Aðaldal. Í greininni er Orri kynntur sem helsti bjargvættur laxins, en hann hlaut á síðasta ári hin virtu Goldman-umhverfisverðlaun fyrir baráttu sína með Verndarsjóði villtra laxastofna. Er Orri sagður nútíma kaupsýslumaður sem notfærir sér viðskiptahæfileika til verndar náttúrulegum gæðum; einn virtasti stangveiðimaður samtímans notfærir sér eðli kapítalismans til að bjarga Atlantshafslaxinum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert