Kanína fannst í morgun við Kópavogsbraut. Þeir sem fundu hana auglýsa nú eftir eiganda hennar. Um er að ræða svarta kanínu með hvítum doppum.
Þeir sem týnt hafa slíkri kanínu geta haft samband við Steinu Rún í síma 866-2403. Hún segir að ef enginn hringir þá muni kanínan líklegast fara til einhverra sem geti hugsað um hana til lengri tíma.