Tveir skíðamenn slösuðust í Hlíðafjalli í dag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri hlaut skíðamaður opið beinbrot í morgun og var hann fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Um hádegisbil í dag var svo annar skíðamaður sóttur sem hafði dottið og meitt sig á baki.