Viðskiptaráðherra gagnsetti í dag róbóta í nýju apóteki Lyfjavers sem er eitt það tæknivæddasta í Evrópu. Apótekið opnar með formlegum hætti á morgun.
Lyfjaver opnar nýtt apótek að Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík á morgun. Nýja apótekið er í sama húsi og eldra apótek en aðstaða er öll mun stærri og betri bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.
Fram kemur í fréttatilkynningu að nýja apótekið sé án efa eitt það tæknivæddasta í Evrópu því þar hafa verið settur upp mjög öflugir APOSTORE 3000 róbótar þeir fyrstu sinnar tegundar á Íslandi og er búnaðurinn sérhannaður fyrir apótekið og afgreiðslu á lyfjapakkningum fyrir dvalar- og hjúkrunarheimili.
Það var Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra sem gangsetti róbótana á fundi með fjölmiðlamönnum í dag. Róbótarnir taka við lyfjapakkningum, raða þeim upp í hillur í klefanum, sem þeir vinna í, og taka einnig til pantanir samkvæmt lyfseðli. Umráðasvæði róbótanna er 20 m2 rúmar það 22.000 pakkningar. Viðskiptavinir geta fylgst með á flatskjá hvernig róbótarnir vinna.
Fyrir er Lyfjaver með öfluga tölvustýrða lyfjaskömmtun, bæði fyrir einstaklinga og stofnanir, og var fyrirtækið brautryðjandi í slíkri lyfjaskömmtun hér á landi og fyrst til að taka slíka tækni í notkun árið 1999.