Fóru út af á Hellisheiði

Leiðindaveður er á Hellisheiði.
Leiðindaveður er á Hellisheiði. Árvakur/RAX

Að minnsta kosti þrír bílar hafa farið út af veginum á Hellisheiði í morgun, en þar er mjög hvasst og flughált. Að sögn lögreglu endaði einn bíll á hliðinni. Engan hefur sakað og er lögregla og björgunarsveitir á staðnum.

Þá hafa björgunarsveitir verið kallaðar út í Hveragerði og Akranesi til að aðstoða vegna foks. 

Verið er að kanna færðina í Þrengslunum en að sögn lögreglu gæti svo farið að þar þyrfti einnig að loka veginum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert