Allt innanlandsflug hefur legið niðri í dag vegna veðurs og slæmrar færðar. Engar tafir hafa hins vegar orðið á millilandaflugi.
Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands verður næst athugað með flug kl. 14:10. Næsta athugun með flug til Vestmannaeyja er hins vegar kl. 15:45.