Héraðsdómur Suðurlands hefur fundið fimm karlmenn á aldrinum 17 til 21 árs seka um að stela hjólum af bíl, sem stóð á bílasölu á Selfossi sl. sumar. Tveir mannanna voru dæmdir til að greiða sekt fyrir brotið en refsingu þriggja var frestað.
Í dómnum segir, að mennirnir hafi ákveðið að stela hjólunum um hálfum mánuði áður en þeir létu til skarar skríða en tilgangurinn var að setja dekkin á bíl eins þeirra.