Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir, að nokkuð beri á því að ökumenn hirði ekki um að skafa af bílrúðum og hafi lögreglumenn haft afskipti af allmörgum ökumönnum vegna slíks, m.a. við grunnskóla en þar megi lítið út af bregða í skammdeginu.
Biður lögreglan ökumenn að taka sig á og skafa af bílrúðum en með því sé öryggi allra betur tryggt.
Allt að 5 þúsund króna sekt liggur við broti af þessu tagi.