Hæstiréttur hefur staðfest úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að tveir Litháar, sem voru í héraðsdómi í síðustu viku dæmdir í 5 ára fangelsi fyrir nauðgun, sæti gæsluvarðhaldi á meðan áfrýjunarfrestur til Hæstaréttar varir.
Mennirnir tveir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því þeir voru handteknir í Reykjavík í nóvember á síðasta ári. Gæsluvarðhald þeirra er framlengt til 22. febrúar.