Akureyringur fékk stóra vinninginn

Akureyringur hreppti fyrsta vinning í lottóinu um síðustu helgi og vann tæpar 22 milljónir. Sá heppni hefur þegar gefið sig fram við Íslenska getspá.

Síðustu vikur og mánuði hafa Akureyringar sópað að sér hverjum stórvinningnum á fætur öðrum en samtals hefur Íslensk getspá greitt rúmar 210 milljónir til heppinna íbúa í höfuðstað norðurlands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert