Fíkniefni fundust við húsleit

Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti í Reykjavík eftir hádegi í gær. Að sögn lögreglu er talið að um sé að ræða bæði amfetamín og kannabisefni. Fíkniefnaleitarhundur var notaður við aðgerðina.

Á sama stað fundust einnig munir sem grunur leikur á séu þýfi. Þrír karlmenn voru handteknir vegna rannsóknarinnar. Húsleitin var gerð að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert