Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að hún teldi að krónan væri að verða viðskiptahindrun, sem ekki væri hægt að búa við til langframa.
Þetta kom fram í umræðum um skýrslu utanríkisráðherra um Ísland á innri markaði Evrópu á Alþingi. Ingibjörg Sólrún sagði, að þessi skoðun hennar væri óháð þeirri stöðu sem væri uppi á fjármagnsmörkuðum um þessar mundir.
„Þetta er grundvallarviðhorf, sem tengist því að þegar fjármagnsflutningar eru orðnir frjálsir og bankarnir okkar eru orðnir jafn alþjóðlegir og stórir sem raun ber vitni að þá fái það ekki staðist til langfarma að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil á þessu svæði," sagði hún.
Ingibjörg Sólrún sagði, að það væri þó í hennar huga ekki dagaspursmál varðandi krónuna og Íslendingar hefðu oft búið við viðskiptahindranir um langan tíma án þess að allt færi á hvolf í íslensku samfélagi.
„Ég tel að þetta sé stefnumið sem við þurfum að hafa og eigum að hafa og leiðir af þeirri alþjóðavæðingu, sem orðin er," sagði utanríkisráðherra.