Vonskuveður um mestallt land

Vonskuveður er um mestallt land
Vonskuveður er um mestallt land Árvakur/RAX

Það er vonskuveður um mestallt land og víða slæm færð. Vegagerðin varar við því að við að ekki sé ferðaveður í Öræfasveit vegna hvassviðris og sama er að segja um Mývatns- og Möðrudalsöræfi, sem og Hólasand.

Það er hálka og töluvert mikill skafrenningur á Hellisheiði og í Þrengslum
líkt og víða um Suðurland. Það sama er að segja um Reykjanesbrautina og
Suðurnes.

Á Vesturlandi er Brattabrekka ófær en þæfingsfærð er á nokkrum leiðum í
Hvalfirði, Borgarfirði og á Snæfellsnesi. Stórhríð er á Laxárdalsheiði og í
botni Hvammsfjarðar. Svínadalurinn er ófær.

Þá er ófært milli Reykhólasveitar og Flókalundar en þungfært um
Kleifaheiði, Mikladal og Hálfdán. Búið er að opna milli nágrannabyggða
Ísafjarðar og mokstur er hafinn í Ísafjarðardjúpi og á Ströndum.

Á Norðurlandi er stórhríð á Vatnsskarði og eins milli Blönduóss og
Skagastrandar, - og á Þverárfjalli. Þá er óveður á Mývatns- Möðrudalsöræfum
og vegur ófær yfir fjöllin.

Á Austurlandi er víðast hvar mikil snjókoma, Fjarðarheiði er ófær en
þungfært er yfir Oddsskarð.

Vakin er athygli á að vegir eru víðast hvar ekki mokaðir seint á kvöldin
eða yfir nóttina og því ætti fólk að varast að vera á ferð á vegum úti
eftir að þjónustu lýkur nema útlit sé fyrir mjög gott veður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert