16% Reykvíkinga eru ánægðir með nýjan borgarstjóra, að því er kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup, sem Útvarpið sagði frá. 64% sögðust vera óánægð en 24% sögðust hvorki vera ánægð né óánægð.
Þá sögðust 27% þeirra, sem tóku afstöðu, vera ánægð með nýjan meirihluta í borgarstjórn, 62% sögðust vera óánægð og 11% sögðust hvorki ánægð né óánægð.