Fundað hjá ríkissáttasemjara í dag

Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins hafa verið boðaðar á samningafund hjá ríkissáttasemjara klukkan 13:00 í dag og þá hefur Starfsgreinasambandið boðað allar viðræðunefndir sambandsins á fund á morgun þar sem menn munu bera saman bækur sínar og meta stöðuna, að því er fram kemur á vef Einingar Iðju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert