Í fangelsinu á Litla Hrauni hefur verið gripið til þess ráðs að vista fanga saman í klefa þar sem fangelsið er nú yfirfullt. Sömu sögu er að segja frá öðrum fangelsum landsins. Þetta kemur fram á vef fanga, Tímamótum.
„Á meðan fangelsismálastofnun ríkisins virðist standa ráðþrota frammi fyrir aukningu refsivista fanga er það mat stjórnar AFSTÖÐU – félags fanga að þetta bjóði hættunni heim. Hætta á ofbeldi og þá kannski kynferðislegu ofbeldi, sem ekki hefur verið mikið af í fangelsum landsins svo vitað sé, þó grunur um slíkt ofbeldi hafi vaknað á síðustu árum. Hér er um mikla afturför að ræða. Eineltisáætlun fangelsismálastofnunnar frá árinu 2004 er allgjörlega virt af vettugi, sem að auki skapar mun erfiðari starfsgrundvöll fyrir þá sem vinna í fangelsum landsins.
Úrræðaleysi fangelsismálastofnunnar helgast því af þröngsýni og íhaldssamri stefnu sem rekin er með gróðasjónamiðum af markmiði og langt frá því sem markmiði sem stofnunnin hefur lagt fram", segir í áliti frá stjórn AFSTÖÐU.
Vefur fanga Tímamót