2 menn eru í haldi lögreglu grunaðir um aðild að bankaráni í útibúi Glitnis í Lækjargötu. Að sögn lögreglu voru mennirnir handteknir í Garðabæ skömmu fyrir hádegi. Þeir voru fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem þeir verða yfirheyrðir. Annar mannanna mun hafa komið við sögu í öðru ránsmáli.
Karlmaður vopnaður öxi ógnaði starfsfólki Glitnis skömmu eftir opnun í morgun og hafði síðan eitthvað af fjármunum á brott með sér.
Þrír gjaldkerar í útibúi Glitnis í Lækjargötu brugðust hárrétt við aðstæðum er maður vopnaður exi réðst að þeim skömmu eftir opnun útibúsins í morgun og krafði þá um fjármuni. Ýttu gjaldkerarnir á neyðarhnapp og kom lögregla strax á staðinn.