Vopnað bankarán í Lækjargötu

Vopnað rán var framið í Lækjargötu nú í morgun í bankaútibúi Glitnis, skömmu eftir að bankinn var opnaður.  Karlmaður vopnaður öxi ógnaði starfsfólki og hafði síðan eitthvað af fjármunum á brott með sér, að sögn lögreglu.

Lögreglan segir, að ræninginn, sem sé talinn vera á aldrinum 20-25 ára, sé hvítur á hörund. Hann er fölleitur og með kringluleitt andlit. Maðurinn var klæddur í gráa hettupeysu og með svarta húfu þar undir. Hann var í svörtum jakka utanyfir og bar svört sólgleraugu.

Talið er að ræninginn, sem er enn ófundinn, sé um 175 sm á hæð en hann var með svartan og gráan bakpoka meðferðis.

Lögreglan segir, að rannsókn málsins sé á frumstigi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka