Töluvert hefur snjóað á Austurlandi frá því sl. föstudag. Starfsmaður við Kárahnjúkavirkjun, sem ætlaði um 500 metra vegalengd milli húsa á laugardag, varð t.d. að grafa sig í fönn vegna veðurhams. Vinnufélagar mannsins tóku að undrast um hann og fundu hann eftir rúmar þrjár klukkustundir og var hann þá orðinn mjög kaldur. Maðurinn dvelur nú á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þar sem gert er að slæmum kalsárum á höndum.