Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Peter-Harry Carstensen, forsætisráðherra þýska sambandslandsins Slésvík-Holstein og Caroline Schwarz, menningarmálaráðherra Slésvíkur-Holstein, héldu á mánudag blaðamannafund í Kiel í tilefni af því að hafinn er undirbúningur að raðtilnefningu menningarminja frá tímum víkinga á heimsminjaskrá UNESCO.
Verkefnið er samstarfsverkefni margra þjóða en auk Íslands og Slésvík-Holstein koma Danmörk og Svíþjóð að verkefninu auk þess sem stjórnvöld í Kanada og Noregi hafa fylgst með framvindu mála og verða hugsanlega aðilar að ferlinu.
Vinna að tilnefningu er langt og strangt ferli, sem krefst mikils og náins samstarfs milli þátttökulandanna. Öll löndin eiga jafnmikið í verkefninu þó svo reglur UNESCO kveði á um að eitt ríki þurfi að bera ábyrgð á verkefninu og afhenda tilnefningarskjölin fyrir hönd allra hinna, samkvæmt tilkynningu.
Mun Ísland sinna því hlutverki að vera ábyrgðaraðili verkefnisins en frumkvæði að raðtilnefningunni átti Slésvík-Holstein, sem í nokkur ár hefur unnið að undirbúningi þess að tilnefna Haithabu og Danewirke á heimsminjaskrána.
Stefnt er að því að tilnefning vegna víkingaminja verði afhent UNESCO fyrir 1. febrúar 2010.