Beit mann í lærið í gleðskap

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 31 árs gamlan karlmann í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá annan mann tvisvar í andlitið og bíta hann í vinstra lærið.  Þetta gerðist í apríl 2006 í gleðskap í Vestmanneyjum.

Árásarmaðurinn, sem þrisvar áður hefur verið dæmdur fyrir líkamsárásir, var einnig dæmdur til að greiða manninum sem hann beit og sló, 182 þúsund krónur í bætur.

Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til þess að útgáfa ákæru í málinu dróst mánuðum saman.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert